Fundargerðir

Fundargerðir

Fundir 2009-2010

Stýrihópur um Evrópumál hefur haldið tvo fundi á haustdögum 2009 þar sem fjallað hefur verið um skipulag vinnunar framundan. Samþykkt var að vinna að þremur verkefnum samtímis þ.e. endurskoðun heimasíðunnar með tilliti til Evrópumála og áherslna þar að lútandi. Að vinna með fyrirtækjum og félagsmönnum með það að markmiði að kanna hug þeirra til álitamála er varða aðild Íslands að Evrópusambandinu og loks að taka saman úttekt úr þessari vinnu sem höfð verði til hliðsjónar í áframhaldandi vinnu sem og samningaviðræðum við Evrópusambandið sem framundan eru.

Þriðji fundur stýrihópsins var haldinn í lok desember 2009  þar sem fjallað var um fyrirhugaða áfangaskýrslu starfshópsins. Ákveðið að hópurinn skilaði áfangaskýrslu fyrir Iðnþing 4. mars 2009. Þar yrði fjallað um þau helstu álitamál sem forsvarsmenn fyrirtækja innan SI standa frammi fyrir vegna aðildar að ESB. Skýrslan fengi umfjöllun á þinginu, hún endurskoðuð, og í framhaldinu yrði hún send til allra félagsmanna. Næstu skref varðandi vinnuna verða m.a. byggð á viðtökum og umfjöllun Iðnþings.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica