Stýrihópur um Evrópumál

Samtök iðnaðarins hafa markvisst fylgst með og tekið þátt í umræðu um Evrópumál. Þau hafa að öðrum hagsmunasamtökum ólöstuðum verið í fararbroddi hvað þennan málaflokk varðar og beitt sér fyrir opinni umræðu, upplýsingagjöf og hlutlausu hagsmunamati fyrir sína félagsmenn með reglubundnum hætti. Á Iðnþingi árið 2009 var samþykkt að þau myndu vinna áfram að hagmunum félagsmanna á þessu sviði og stofnaður var stýrihópur til að halda utan um þá vinnu. Stýrihópunum er ætlað að fjalla um og meta áhrif aðildar að ESB á fyrirtæki innan vébanda SI. 

Stýrihópurinn tekur í störfum sínum mið af stefnu SI í Evrópumálum sem hefur m.a. byggt á eftirfarandi þáttum:

-   markvissri stefnumótun, greiningu á kostum og göllum aðildar að Evrópusambandinu
-   könnunum á viðhorfum félagsmanna og almennings til aðildar
-   þátttöku í samstarfi sem býðst íslenskum iðnaði innan ramma EES-samningsins
-   vöktun á  reglum sem ESB hyggst setja og munu hafa áhrif á iðnaðinn
-   vöktun með að íslensk stjórnvöld setji reglur og framfylgi þeim í samræmi við EES-samninginn
-   hagsmunagæslu með þátttöku í samstarfi iðn- og atvinnurekenda á norrænum og evrópskum vettvangi


Í stýrihópnum eru, Jón Sigurðsson sem er jafnframt formaður hópsins, Hörður Arnarson og Finnur Geirsson, Jón Steindór Valdimarsson og Bjarni Már Gylfason. Hópurinn hefur skilgreint helstu verkefni sem leggja ber áherslu á og hefur fengið til þess sérfræðinga frá Háskólanum í Reykjavík og frá Háskóla Íslands.

Af þeim verkefnum sem þegar eru komin á rekspöl má nefna þessa upplýsingasíðu um Evrópumálin og mikilvægi þeirra fyrir félagsmenn.

Unnið hefur verið að upplýsingasöfnun og umræðu meðal einstakra starfsgreinahópa innan SI um hvaða þættir Evrópumálanna snerta hagsmuni og starfsemi þeirra fyrirtækja hvað mest. Settir voru upp rýnihópar þar sem félagsmenn komu saman og ræddu Evrópumál undir stjórn faglegs ráðgjafa. Markmiðið með umræðunni var að fá fram sem flesta þætti og álitaefni sem snerta rekstur fyrirtækjanna og snúa að aðild að ESB. Þá er horft til allra þátta, hvort sem þeir eru jákvæðir eða neikvæðir. Búið er að setja saman skýrslu byggða á þessari vinnu. Drög að henni voru kynnt á Iðnþingi 2010 og í kjölfar umræðu þar og athugasemda var hún fullgerð og send til allra félagsmanna í byrjun maí 2010.

Þá er unnið að því að draga saman og leggja mat á áhrif aðildar á einstaka hópa og greinar innan SI. Samtökin vilja geta með nokkuð góðri vissu sagt fyrir um áhrif aðildar að Evrópusambandinu á mismunandi starfsgreinar og þá fjölbreyttu flóru fyrirtækja sem starfa innan vébanda þeirra. Þannig komi sem fæst á óvart fyrir félagsmenn ef að aðild Íslands verður. Verkefnið stuðlar jafnframt að upplýstri umræða félagsmanna um áhrif aðildar á hagsmuni iðnaðarins. Verkefnið er unnið þannig að valin eru nokkur fyrirtæki úr mismunandi starfsgreinum og rætt við stjórnendur þeirra á vettvangi um hagsmuni fyrirtækisins, tækifæri og ógnanir.

Ljóst er að ekki verður hægt að svara öllum spurningum og álitamálum sem upp kunna að koma í ferlinu sem framundan er á þessu stigi málsins en hins vegar verður óvissuþátttum fækkað eins mikið og mögulegt er.  








Þetta vefsvæði byggir á Eplica