Skoðanakannanir

Skoðanakannanir 2000-2009

Aðild að  Evrópusambandinu er líklega stærsta hagsmunamál sem þjóðin hefur staðið frammi fyrir frá lýðveldisstofnun og því mikilvægt að um málið ríkji sem mest og best samstaða. Þess vegna hafa SI lagt mikla áherslu á að kanna vel hug sinna félagsmanna til þessa máls og sömuleiðis alls almennings í landinu. Enginn annar aðili hefur með reglubundnum hætti yfir svo langt tímabil kannað afstöðu þjóðarinnar til Evrópusambandsaðildar. Þessi upplýsingasöfnun er því einstök og gefur innsýn í þróun á afstöðu þjóðarinnar og félagsmanna yfir næstum því 10 ára tímabil. SI hafa átt góða samvinnu við IMG Gallup, nú Capacent Gallup, sem hefur séð um framkvæmd allra viðhorfskannana  um Evrópumálin. Allar kannanirnar er að finna í heild sinni hér fyrir neðan og er heimilt að vitna til þeirra enda sé heimilda getið.

Samkvæmt þeim niðurstöðum sem fengist hafa það fer ekki á milli mála að mikill meirihluti svarenda hefur verið þeirrar skoðunar að taka ætti upp viðræður um aðild Íslands að ESB. Svo hefur veriðí öllum könnunum í þau sex ár sem spurt hefur verið hvort svarendur væru hlynntir eða andvígir því að taka upp aðildarviðræður við Evrópusambandið.

Þegar spurt er beint hins vegar: Ertu hlynntur eða andvígur aðild að Evrópusambandinu, hefur verið mjórra á munum en í yfirgnæfandi fjölda tilvika hafa fleiri verið hlynntir aðild en andvígir henni.

Skoðanakannanir (símakannanir) meðal almennings tímabilið  ágúst 2000 til mars 2010 (PDF snið)þ

Samantekt kannana frá ágúst 2000 til ágúst 2008

febrúar/mars 2010 ágúst/september 2009 - febrúar 2009 - ágúst 2008 - apríl 2008 - febrúar 2008 - janúar 2008 - ágúst 2007 - febrúar 2007 - ágúst 2006 - febrúar 2006 - ágúst 2005 - febrúar 2005 - ágúst 2004 - febrúar 2004 - febrúar 2003 - júlí 2002 - febrúar 2002 - ágúst 2001 - febrúar 2001 - ágúst 2000





Þetta vefsvæði byggir á Eplica