Framtíðina mótum við núna
Eitt helsta hlutverk Samtaka iðnaðarins er að tryggja félagsmönnum sínum, þ.e. íslenskum iðnaði, eins hagfelld starfsskilyrði og unnt er.
Langt er síðan mönnum varð ljóst að ef iðnaðurinn ætti að þróast með eðlilegum hætti og verða burðarás í íslensku efnahagslífi yrði að tryggja aðgang að markaði, eðlilega samkeppni, góð almenn starfsskilyrði og stöðugleika.
Eitt leiðarstefið í því að tryggja vöxt og viðgang iðnaðarins hefur því verið að tryggja þátttöku Íslands í vaxandi samvinnu Evrópuríkjanna undanfarna áratugi.
Aðildin að EFTA, gerð fríverslunarsamninga og loks aðild Íslands að EES samningnum hefur verið dyggilega studd af Samtökum iðnaðarins. Hið sama gildir um aðild Íslands að ESB sem nú er í deiglunni.
Samtök iðnaðarins taka þátt í samningaferlinu eftir því sem unnt er til þess að gæta hagsmuna iðnaðarins. Þau munu samtímist halda félagsmönnum sínum upplýstum um gang mála og fræða þá um hvað aðild felur í sér fyrir iðnaðinn.
Þessi vefur verður mikilvægur liður í þessu mikilvæga starfi.
Jón Steindór Valdimarsson

