Utanríkismálanefnd Evrópuþingsins hefur lagt fram tillögu að ályktun um aðild Íslands. Þar er farið jákvæðum orðum um umsóknina og aðild Íslands.
Utanríkissráðherra, Össur Skarphéðinsson, lagði fram skýrslu sína um utanríkis- og alþjóðamál á Alþingi í dag. Þar er meðal annars að finna ítarlegan kafla um stöðu mála varðandi umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu.
Í umræðum að undanförnu hér á landi er oft og iðulega fullyrt að völd smáríkja innan Evrópusambandsins séu lítil eða engin. Staðreyndin er hins vegar sú að stærri ríki Evrópusambandsins hafa í raun samþykkt að smærri ríkin hafi hlutfallslega mun meiri formleg völd m.a. að teknu tilliti til fólksfjölda og efnahagslegs styrks.
Þó oft sé sagt að ekkert markvert gerist í Brussel nema „þýsk- franski - öxulinn“ ráði ferðinni þá verður ekki litið framhjá því að í seinni tíð vegur Þýskaland mun þyngra en Frakkland þegar kemur að stórum efnahagslegum ákvörðunum. Þýska efnahagsvélin sem hefur drifið áfram hagkerfi Evrópu og Evrópusambandsins hikstar sjaldan og er það bakland sem aðildarríkin líta til þegar á reynir líkt og nú um stundir.