Fréttasafn

Aðildarviðræður við ESB - samningaferlið

4.5.2010

Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri SI setti fundinn með þeim orðum að það hefði í áraraðir verið stefna samtakanna að kanna ætti til hlítar þá leið að ganga í Evrópusambandið. Stöðugleika sé þörf svo hér sé hægt að byggja upp öflugan iðnað og atvinnulíf.

Svana Helen Björnsdóttir, forstjóri Stika og formaður Samtaka sprotafyrirtækja, sagði frá kynnisferð 13 frumkvöðla í höfuðstöðvar ESB í Brussel nú í mars. Þrettán manns úr ólíkum greinum hittu fólk, sátu fyrirlestra og fræddust um Evrópusambandið.

Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra í Brussel og aðalsamningamaður Íslands hóf mál sitt með að lýsa ánægju yfir að fá tækifæri til að ræða þessi mál við fundargesti. Mikilvægt væri fyrir hann að eiga góð samskipti við þá sem eiga hagsmuna að gæta.

Ísland er statt í umsóknarferli ennþá, ráðherraráð ESB þarf að samþykkja að hefja viðræður þá fyrst verður viðræðum formlega ýtt úr vör. Fyrsta skrefið er að fara yfir löggjöf íslands og bera hana saman við löggjöf ESB og skilgreina hvað ber á milli. Undirbúningur að því er í fullum gangi í samningahópum. Í framhaldi af því þarf að skilgreina hvað við ætlum að leggja til ákveðinna mála og málaflokka. Þegar samningur liggur fyrir er hann lagður fyrir þjóðina.

Sjá nánar 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica