Fréttasafn

Völd smáríkja innan Evrópusambandsins

31.3.2010

Í umræðum að undanförnu hér á landi er oft og iðulega fullyrt að völd smáríkja innan Evrópusambandsins séu lítil eða engin. Staðreyndin er hins vegar sú að stærri ríki Evrópusambandsins hafa í raun samþykkt að smærri ríkin hafi hlutfallslega mun meiri formleg völd m.a. að teknu tilliti til fólksfjölda og efnahagslegs styrks. Reyndar er það svo að í stórum málaflokkum eru völd smáríkja formlega séð jöfn á við völd stóru ríkjanna. Skoðum stofnanir sambandsins og tökum örfá dæmi þessu til stuðnings. 


Ráðherraráðið
Hvert aðildarríki Evrópusambandsins hefur sinn ráðherra við borðið þegar ákvarðanir eru teknar í hverjum málaflokki fyrir sig. Ákvarðanir ráðherranna eru að öllu jöfnu annað hvort ákvarðanir sem taka þarf með samstöðu (einstök ríki hafa þá neitunarvald) eða ákvarðanir sem um gildir reglan um vegin meirihluta þ.e. ef ekki hefur þegar náðst samstaða á milli ráðherranna. Neitunarvald aðildarríkjanna gildir í stórum málaflokkum sem eru m.a. öryggis, innanríkis- dóms og varnarmálum. Malta hefur tvisvar sinnum á sínum 5 ára ferli innan sambandsins beitt neitunarvaldi og Lúxemborg hefur beitt því til að koma í veg fyrir afnám bankaleyndar svo örfá dæmi sé tekin. Þetta hefur verið gríðarlega mikilvægt fyrir smáríkin að vera þannig jafnsett stærri ríkjunum.

 

Þegar kemur að ákvörðunum sem byggja á vegnum meirihluta (majority voting) sem eru ákvarðanir sem snúa fyrst og fremst að innri markaðnum þ.e. frjálsu flæði, vöru, þjónustu, fólks og fjármagns um svæðið þá er atkvæðavægi mismunandi byggt m.a. á stærð og efnahagsstyrk þjóða. Þessir málaflokkar  heyra  undir EES-samninginn og ákvarðanir sem Evrópusambandið tekur á þessu sviði eiga því við um Ísland. Þjóðverjar hafa ef til atkvæðagreiðslu kemur 29 atkvæði af 345 heildarfjölda atkvæða í ráðinu en Maltverjar eru með 3 atkvæði. Atkvæðavægi Möltu er því 30 falt á við atkvæðavægi þjóðverja miðað við fólksfjölda.


Ef kemur til atkvæðagreiðslu þá er kerfið þannig uppbyggt að stóru ríkin sex geta ekki þvingað fram ákvörðun sér í hag nema hafa með sér átta smáríki í það minnsta og 65% af mannfjölda Evrópusambandsins að baki ákvörðuninni.


Framkvæmdastjórnin
Framkvæmdastjórnin hefur frumkvæði að allri löggjöf og sér um framkvæmd og eftirlit með sáttmálum sambandsins. Hvert aðildarríki hefur sinn eigin framkvæmdastjóra. Hver framkvæmdastjóri hefur mikil völd í þeim málaflokki sem hann hefur umsjón með. Maltverjar hafa einn framkvæmdastjóra líkt og Þjóðverjar en maltverjinn Joe Borg fer með siglingar og fiskveiðimálefni. Smáríki innan Evrópusambandsins hafa neitað að gefa þetta eftir og telja þetta gríðarlega mikilvægt til að tryggja völd þeirra og áhrif.


Evrópuþingið
Á Evrópuþinginu sitja nú 736 þingmenn. Stærsti flokkurinn á þinginu er flokkur miðju- og hægrimanna (European Peoples Party) með 265 þingmenn og næstir koma síðan Sósíaldemókratar með 184 þingmenn, aðrir flokkar hafa færri þingmenn. Þingmenn einstakra ríkja á Evrópuþinginu mynda ekki bandalög gegn þingmönnum annarra ríkja heldur skiptist þingið í 7 stjórnmálaflokka þvert á ríki. Þjóðverjar eru með 99 þingmenn en Maltverjar 5 þingmenn. Hver þingmaður Maltverja er með um 10 sinnum meira vægi miðað við fólksfjölda en hver þingmaður þjóðverja. Með Lisabonsáttmálanum þá fjölgar þingmönnum Möltu í 6 og verður það lágmarkstala þingmanna einstaks aðildarríkis en hámarkstala þingmanna fyrir eitt ríki verður 96 þingmenn þannig að völd smáríkja aukast ennfrekar að þessu leyti.

 

Aðrar valdastofnanir

Í öðrum stofnunum hafa öll aðildarríki sína fulltrúa og oftar en ekki á jafnræðisgrundvelli. Hér ber að nefna Seðlabanka Evrópu, Evrópudómstólinn, Efnahags- og félagsmálanefndin, Byggðamálanefndin, Evrópska fjárfestingabankann, Evrópska fjárfestingarsjóðinn og um 30 aðrar stofnanir sambandsins.

Völd aðildarríkja Evrópusambandsins eru og verða eilífðar átakamál. Stærri ríkin lýsa reglulega óánægju sinni með fyrirkomulagið og vildu flest að völd innan sambandsins tækju meira mið af mannfjölda og efnahagslegum styrk. Smáríkjum innan sambandsins hefur hins vegar tekist með aðdáunarverðum hætti að viðhalda sterkri stöðu sinni.






Þetta vefsvæði byggir á Eplica