ESB

ESB

European Union – EU – Evrópusambandið - ESB

Evrópusambandið er samband 27 Evrópuríkja sem hafa með sér nána samvinnu, veita gagnkvæm réttindi og setja sér sameiginlegar reglur á mörgum sviðum.

Engin önnur ríki eða ríkjabandalög hafa með sér eins nána samvinnu og hefur þróast innan ESB og er það því á margan hátt einstakt í sinni röð. Innan ESB hafa sjálfstæð og fullvalda ríki ákveðið að byggja upp sameiginlegar stofnanir þar sem þau deila með sér fullveldi sínu til þess að taka ákvarðanir sem varða sameiginlega hagsmuni.

Markmið  ESB er efnahagsleg- og pólitísk samvinna sem stuðlar að friði og hagsæld í Evrópu.

Sáttmálar

Fyrsti formlegi sáttmálinn sem markar upphaf Evrópusambandsins er Parísarsáttmálinn frá 1951 um stofnun Kola- og stálbandalags Evrópu og síðan koma þeir merkustu, Rómarsáttmálarnir frá 1957 um stofnun Efnahagsbandalags Evrópu og Kjarnorkubandalag Evrópu. Þá kemur Maastricht sáttmálinn frá 1992 þar sem Evrópusambandið fékk að mestu á sig núverandi mynd.

Auk þessara grundvallarsáttmála hafa orð aðildarríkin orðið ásátt um margar mikilvægar breytingar á samstarfinu s.s. Sameiningarlög Evrópu frá 1986, Amsterdamsáttmálann frá 1997 og Nicesáttmálann frá árinu 2000 og síðan Lisabonsáttmálann sem er í fullgildingu aðildarríkjanna.

Stofnanirnar fimm

Evrópuþingið - þingmenn kosnir beinni kosningu í hverju aðildarríki fyrir sig
Ráðherraráðið - ráðherrar úr ríkisstjórnum aðildarríkjanna í hverjum málaflokki
Framkvæmdastjórnin - forseti skipaður af Ráðherraráði, aðrir af aðildarríkjunum, ný framkvæmdastjórn þarf að samþykkjast af Evrópuþinginu
Evrópudómstóllinn - aðildarríkin tilnefna dómara
Endurskoðunardómstólinn - aðildarríkin tilnefna í dómstólinn
Evrópuþingið  er frábrugðið þjóðþingum að því leyti að  það hefur ekki frumkvæði að lagasetningu og það  deilir lagasetningarvaldinu með ráðherraráðinu. Það  er framkvæmdastjórnin sem hefur frumkvæðisrétt að lagasetningu en ráðherraráðið fer með pólitíska stjórn. Framkvæmdastjórnin hefur jafnframt það hlutverk að framfylgja sáttmálunum og hafa eftirlit á svæðinu. Evrópudómstóllinn dæmir í ágreiningi sem upp kann að koma af sáttmálunum, afleiddri löggjöf og framkvæmd þeirra.
 

Ísland og ESB

Tengsl Íslands við ESB hófust með fríverslunarsamningi árið 1972 þegar EFTA ríkin sömdu við ESB um fríverslun. Fram að gerð EES-samningsins breyttust þessi tengsl lítið að öðru leyti en því sem fólst í auknum samskiptum EFTA og ESB, sérstaklega eftir að skriður komst á áform ESB um sameiginlegan innri markað eftir útgáfu hinnar frægu hvítbókar þessa efnis.

EES-samningurinn sem tók gildi 1. janúar 1994 markar þáttaskil í samskiptum Íslands og ESB. Með nokkrum sanni má segja að þá hafi Ísland gerst aukaaðili að sambandinu og fengið aðgang að markaði þess. Það sem útaf stendur eru mikilvægir málaflokkar s.s. sameiginleg landbúnaðar- og sjávararútvegsstefna, pólitískt samstarf og þættir er lúta að öryggis- og varnarmálum, efnahagssamvinna ýmiskonar og þar vegur auðvitað lang þyngst hinn sameiginlegt gjaldmiðilssamstarf með evrunni.

Samtök iðnaðarins hafa markað þá stefnu að hagsmunum Íslands sé best borgið til framtíðar með fullri aðild að Evrópusambandinu.  




Þetta vefsvæði byggir á Eplica